Engar vörur í körfu
Skráðu þig inn til að sjá verð
Extra olíu og tjöruhreinsir er fyrir bílaþvott, gólf, verkstæði, vélarúm o.s.frv.
Leysir upp tjöru og sápuþvær samtímis. Efninu er úðað á eða borið á með svampi, látið liggja á fleti í 5-10 mínútur, svo er burstað og skolað með köldu vatni t.d. með háþrýstidælu. Byrjið á að skola neðstu fleti og vinnið þannig upp á við.
Þegar efnið er notað óþynnt ber að nota þvottahanska og hlífðargleraugu.
Inniheldur yfirborðsvirk efni og white spirit.
Eldfimt og hættulegt við innöndun, í snertingu við húð og inntöku.