Vandað sett með 17 skralllyklum í stærðum 6–24 mm – í slitsterkum svampbakka sem hentar ORSY verkfæravögnum og hirslum.
Bakkinn er úr endingargóðum svampi með kolefnissvörtu yfirborði sem er auðvelt að þrífa. Stærðirnar eru merktar í hólfunum svo auðvelt er að halda skipulagi og sjá strax hvað vantar. Lyklar eru með 15° vinkli og innbyggðu skralli fyrir þægilegri vinnu á þröngum svæðum.
• 17 skralllyklar í stærðum 6–24 mm
• Svampbakki með kolefnisáferð – auðvelt að þrífa
• Merkt hólf – betra skipulag og yfirsýn
• Lyklar með 15° vinkli og innbyggðu skralli
• Passar í ORSY kerfið, stærð 6.4.1 (345 x 38 x 336 mm)
Traust grunnsett fyrir verkfærahirslur og vagnakerfi sem byggja á ORSY stærðarkerfinu.