Fyrirtæki: Stofnaðu aðgang eða til að sjá verð
(0) vörur
Engar vörur í körfu.

Engar vörur í körfu

    Close
    Filters
    Preferences
    Leita

    Um fyrirtækið

     

    Würth á Íslandi var stofnað árið 1988 og hefur nú þjónustað viðskiptavini sína í 36 ár. Würth samsteypan samanstendur af 413 fyrirtækjum í 84 löndum með ríflega 77 þúsund starfsmenn. Würth á Íslandi ehf. einbeitti sér fyrst að þjónustu við bifreiðaverkstæði, en síðan við tré og málmiðnaðinn ásamt þjónustu við almennan iðnað.

    Með 17 sölumönnum staðsettum um allt land og útibúum í Reykjavík, Hafnarfirði, Akureyri og á Selfossi erum við einnig með eigin útkeyrslu frá Norðlingaholti og þá þjónum við viðskiptavinum okkar með þjálfuðu starfsfólki. Heimsóknir okkar eru skipulagðar með vikulegu að mánaðarlegu millibili um allt land.

     

    Við undirbúum hverja heimsókn með tilliti til helstu söluvara ásamt kynningu á vöruhópum eins og efnavöru, slípi og skurðarverkfærum, persónuhlífum, rafmagnsvörum, festingum eða verkfærum. Í hverri heimsókn einbeitum við okkur að heildarlausn fyrir hvern vöruhóp, auk þess að fara yfir helstu söluvörur.

    Við erum með u.þ.b 9.600 af helstu vörunúmerum á lager sem eru seld hjá Würth fyrirtækjunum. Til að nálgast viðskiptavini okkar vinnum við undir merkjum þess að “Fagfólk velur Würth” og teljum okkur bjóða góðan kost með með einstakri þjónustu og faglegum lausnum í hverjum vöruhóp.