Mínar síður

Ný verslun í Hafnarfirði

Loksins, já loksins er Würth mætt aftur í Hafnarfjörðinn. Föstudaginn 30 apríl 2021 opnum við verslun okkar að Drangahrauni 4 (mitt á milli slökkvistöðvarinnar og Kaplakrika)

Hjá okkur finnur þú allar helstu festingar, efnavöru, vinnufatnað, persónuhlífar, handverkfæri, rafmagns og loftverkfæri, hillukerfi, verkfæravagna og margt fleira.

Komdu endilega í heimsókn, hann Hrafn verslunarstjóri mun taka vel á móti þér :)

Opnunartíminn er:

Mánudaga - Fimmtudaga: 08:00 - 17:00 og Föstudaga er opið 08:00 - 16:00.