Golfmót Würth 2022
Föstudaginn 19. ágúst 2022 héldum við loksins aftur árlega Würth golfmótið sem hefur setið á hakanum undanfarin ár út af jú, þú giskaðir á það, Covid.
Það var frábær mæting og mikið keppnisskap og stemning í þeim sem mættu og spiluðu á Hlíðavelli, Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Svona urðu úrslitin:
Punktakeppni.
1.sæti: Magnús Már Karlsson / +5 punktar að pari, samtals 41
2-4.sæti: Þórhallur Björnsson / +1 punktur að pari, samtals 37
2-4.sæti: Steinn Árni Ásgeirsson / +1 punktur að pari, samtals 37
2-4.sæti: Ásgeir Norðdahl Ólafsson / +1 punktur að pari, samtals 37
Höggleikur án forgjafar.
1.sæti: Atli Már Grétarsson / +1 að pari, samtals 73
2.sæti: Arnar Sigurbjörnsson / +3 að pari, samtals 75
3.sæti: Magnús Már Karlsson / +4 að pari, samtals 76
Hér að neðan má sjá ýmsar myndir frá mótinu.